Fyrsti leikur hjá drengjunum í Dominos deildinni á nýju ári verður háður í kvöld á Hlíðarenda gegn Val og hefst hann kl. 19:15.
Strákarnir hafa æft vel síðustu vikur eftir að hafa tekið sér gott frí fyrir jólin og ættu að mæta ferskir til leiks. Haukar eru núna í 5. sæti Dominos deildarinnar með 6 sigra og 5 töp en Valur er í því neðsta með 1 sigur og 10 töp.
Valsmenn ætla sér örugglega að gera betur á nýju ári og koma vafalítið dýrvitlausir til leiks. Haukarnir hafa verið að spila nokkuð vel í vetur og ætla sér að skríða hærra upp töfluna á nýju ári.
Haukastrákar munu spila 5 leiki í þessum mánuði, þar af eru 4 útileikir og því ljóst að þeir eru að fara inn í erfitt leikjaprógramm.
Við skorum á Haukafólk að mæta á Hlíðarenda og hvetja strákana til sigurs.
Áfram Haukar!