Meistaraflokkur kvenna hefur leik á morgun eftir hlé síðan í nóvember. Stelpurnar mæta spræku liði Fram í Safamýrinni kl 13:30. Haukar eru í 8. sæti eftir 10 umferðir með 7 stig en Framkonur sitja í 5. sæti með 14 stig. Það er því á brattan að sækja en okkar stelpur hafa verið að bæta sig og geta vel unnið Fram með réttu hugafari og góðri baráttu.
Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn og styðja stelpurnar til sigurs.
Áfram Haukar!