Haukastúlkur halda magnaðri sigurgöngu sinni áfram og eru einfaldlega í allt öðrum flokki eftir áramót. Eftir að hafa valtað yfir KR í kvöld 52-86 hafa þær unnið leiki þessa árs með 26,75 stiga mun að meðaltali.
Lele Hardy fór fyrir liðinu að venju með glæsilegri frammistöðu og Margrét Rósa átti frábæran leik, annan leikinn í röð.
Lovísa var með 7 fráköst og 4 varin skot en Auður Íris stal þó senunni í kvöld með 10 stig, sem er hennar besta á þessu tímabili, 6 fráköst, og svo var hún hæst í liðinu með 5 stoðsendingar og 3 stolna bolta.