5. fl. kvk, eldra ár, sigruðu alla leiki sína á 3ja mótinu í röð

Alexandra Jóhannsdóttir með sigurbikarinn frá helginniEldra árið í 5. flokki kvenna lék í sínu þriðja móti um helgina og hélt áfram á sigurbraut, unnu alla fjóra leiki sína.

Úrslitin voru þessi:
Haukar – ÍBV       25 – 7
Haukar – FH        18 – 5
Haukar – UMFA    27 – 3
Haukar – Grótta   25 – 13

Alls skoruðu þær 95 mörk en fengu ekki nema 28 á sig. Sóknarnýtingin var 79% og markavarslan rétt undir 60%. Þessar stelpur eiga sannarlega framtíðina fyrir sér í handbolta.

Markahæst um helgina var Alexandra Jóhannsdóttir en hún skoraði 36 mörk úr 40 skotum sem gerir 90% nýtingu sem er frábær árangur.

Sjá nánar upplýsingar um mótið á bloggsíðu flokksins.

Áfram Haukar!