Haukar taka á móti Fylki í áttaliða úrslitum í Coca Cola bikarkeppni HSÍ á morgun, þriðjudaginn 4. febrúar, kl 19:30 í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Liðin áttust við í deildinni í síðustu viku og þá unnu Haukastelpur 22 – 29.
Eins og allir vita þá getur allt gerst í bikarleikjum því hvetjum við Haukafólk til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar til sigurs. Handknattleiksdeildir Hauka og Fylkis hafa komist að samkomulagi um að gefa öllum frítt á leikinn.
Hlökkum til að sjá ykkur.
ÁFRAM HAUKAR!