Stelpurnar í 10.flokki kvenna voru að tryggja sér bikarmeistaratitilinn eftir glæsilegan sigur á Keflavík. Vörnin og breiddin í Haukaliðinu skilaði þessum sigri fyrst fremst þar sem allir leikmenn Hauka voru að skila góðum leik. Bikararnir halda því áfram að streyma á Ásvelli.
Haukarnir byrjuðu leikinn af krafti og náðu 12-3 í byrjun og náðu Keflavíkur stúlkur aldrei að ná Haukum eftir það. Leikurinn endaði 38-35 fyrir Hauka. Fyrsti sigur Hauka á liði Keflavíkur í þessum flokki kom á réttum tíma.
Inga Rún Svansdóttir var valinn maður leiksins með 11 stig og 13 frákost og 4 stoðsendingar. Dýrfinna Arnardóttir 10 stig, 6 fráköst og Sylvía Rún Hálfdanardóttir 9 stig og 12 fráköst áttu einnig góðan leik fyrir Hauka.
Innilega til hamingju stelpur með frábæran sigur!
Sjá nánar umfjöllun um leikinn á karfan.is