Næst síðasta umferð Domino’s deildar karla í körfuknattleik hefst í kvöld og leika Haukar við Skallagrím í Borgarnesi. Hefst leikurinn kl. 19:15.
Haukar eru enn í baráttu við Þór Þorlákshöfn um fimmta sæti deildarinnar og er því sigur í kvöld mikilvægur fyrir liðið. Að sama skapi er Skallagrímur að berjast fyrir lífi sínu í deildinni og er því ljóst að þetta verður hörku leikur.
Stuðningsmenn Hauka ætla að hittast upp á Ásvöllum og sameina í bíla fyrir leikinn í kvöld. Verður lagt af stað kl. 17:45 og er því kjörið tækifæri fyrir þá sem ekkert far hafa, nú eða geta skaffað far, að mæta á leikinn. Loft Orka býður inn á leikinn og því er miðaverðið engin fyrirstaða.
Borgnesingar eru erfiðir heim að sækja og því mikilvægt að fá hvattningu frá Haukamönnum úr stúkunni.