Næstkomandi laugardagskvöld ætlum við að gera okkur glaðan dag. Slegið verður upp samkvæmi til að fagna vetri og þeim merka áfanga að mfl. karla spilaði á dögunum sinn 100. leik í Evrópukeppninni.
Húsið opnar kl. 19:00 og matur hefst stundvíslega kl. 20:00. Saffran mun sjá um matinn og miðar verða seldir við innganginn.
Áfram Haukar!