Haukapiltar sækja HK heim í Digranesið annað kvöld

Eftir smá hlé á Olísdeild karla vegna landsleikja hefst 9. umferðin á morgun. Haukar fara í Digranesið og sækja HK heim en leikurinn hefst kl. 19:30. HK er í 8. sæti deildarinnar með 4 stig, 2 unna leiki en 6 tapaða. Þeir voru fyrsta liðið til að sigra topplið Aftureldingar og eru sannarlega sýnd veiði en ekki gefin. Okkar menn eru núna í 6. sæti með 7 stig, 2 unna leiki, 3 jafntefli og 3 tapaða. Það er nauðsynlegt að landa sigri á morgun og því hvetjum við alla að fara í Digranesið og styðja okkar menn til sigurs.

Áfram Haukar!