Stórleikur verður í Schenkerhöllinni í kvöld kl. 19:15 er liðin í öðru og þriðja sæti mætast í 10. umferð Dominosdeildar.
Tindastóls menn koma í heimsókn en nýliðarnir hafa verið að spila mjög vel það sem af er tímabilinu og sitja í öðru sæti deildarinnar með átta sigurleiki og eitt tap. Haukarnir eru í þriðja sæti með sex sigurleiki og þrjú töp en hafa unnið tvo síðustu leiki og komist aftur á sigurbraut eftir smá niðursveiflu. Síðustu tveir leikir hafa verið gríðarlega spennandi og hafa dyggir stuðningsmenn Haukaliðsins byrgt sig upp af sprengitöflum.
Búast má við hörku leik þar sem Haukarnir geta sett góða pressu á II. sætið með sigri og farið langt með að tryggja sér III. sætið fyrir jólafrí.
Þetta er síðasti heimaleikur strákana og því er kjörið að koma í Schenkerhölllina snemma, fá sér grillaðan hamborgara og hita vel upp fyrir leikinn.