Á gamlársdag heiðra Haukar sitt besta íþróttafólk í athöfn sem fram fer í hátíðarsalnum á Ásvöllum og hefst kl. 12:30. Þar verður lýst kjöri á Íþróttakonu, íþróttakarli og besta þjálfara ársins.
Auk þess verða kynnt þau ungmenni sem tekið hafa þátt í verkefnum hinna ýmsu landsliða Íslands.
Sitthvað fleira verður á dagskránni. Í lok býður aðalstjórn félagsins til léttra veitinga. Allir Haukafélagar og velunnarar eru velkomnir.
Eftirtalin hafa verið tilnefnd.
Íþróttakona Hauka:
Auður Íris Ólafsdóttir – körfubolta
Eva Ósk Gunnarsdóttir – karate
Karen Helga Díönudóttir – handbolta
Laufey Sigurgeirsdóttir – almenningsdeild
Sædís Kjærbech Finnbogadóttir – knattspyrnu
Íþróttakarl Hauka:
Ásgeir Þór Ingólfsson – knattspyrna
Björn Ari Örvarsson – karate
Haukur Óskarsson – körfubolti
Hreiðar Ingi Júlíusson – almenningsdeild
Sigurbergur Sveinsson – handbolti
Besti þjálfari ársins
Andrés Andrésson – fótbolta
Gunnlaugur Sigurðsson – karate
Helga Helgadóttir – fótbolta
Ingvar Guðjónsson – körfubolta
Patrekur Jóhannesson – handbolta