Getraunaleikur Hauka 221 fer vel af stað þetta árið. Yfir 50 lið hafa skráð sig í keppni í hópleiknum. Vegna tæknilegra vandamála var ákveðið að byrja meistaradeildina næsta laugardag en nú þegar eru 8 lið skráð til keppni en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi verulega fyrir næsta laugardag.
Sá tímamótaviðburður gerðist síðasta laugardag að getspakur Haukari fékk 13 rétta og aldrei þessu vant var seðlinum skilað inn í getraunir. Viðkomandi sem gengur undir nafninu Óskar Nafnleyndar, á því von á góðum vinningi frá Getraunum á næstunni. Almennir Haukamenn þurfa ekki að láta sér bregða ef ónefndur þjálfari félagsins mætir á glæsikerri á næstunni.