Haukastelpurnar fá Keflvíkinga í heimsókn í Schenkerhöllina kvöld kl. 19:15.
Haukarnir töpuðu sínum fyrsta leik í vetur í Hólminum á sunnudaginn þar sem Haukaliðið var langt frá sínu besta en það verður þó ekki tekið af liði Snæfells að þær spiluðu hörku vörn og útlendingur þeirra var á eldi í leiknum. En eins og fuglinn Fönix þá munu stelpurnar rísa aftur upp og eru þær ákveðnar í því að koma grimmar til leiks í kvöld og komast aftur á sigurbraut.
Keflvíkingar sitja í fjórða sæti í deildinni en þær eru með ungt lið og hefur vantað stöðugleika í sinn leik.
Það má búast við hörku leik í kvöld og því hvetjum við allt Haukafólk til að mæta á Ásvelli og styðja liðið áfram og hjálpa þeim að komast aftur á sigurbraut.