Vel heppnuð þrettándagleði

þrettandaglediFjölmenni var á þrettándagleði á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld. Álfarnir létu sig ekki vanta enda brennan í hraunjaðrinum og stutt fyrir þá að skottast yfir.
Skrautlegir álfar spígsporuðu í kringum brennurnar og Grýlu og Leppalúða tókst engan að hræða þótt þau hafi verið ófrýnileg að sjá.
Yngsta kynslóðin og þær eldri skemmtu sér prýðilega og voru jólin kvödd með söng og gleði.
Skemmtuninni lauk með glæsilegri flugeldasýningu Hjálparsveitarinnar.