Haukar fara til Þorlákshafnar í kvöld og keppa við heimamenn í 8 liða úrslitum Powerate bikarsins og hefst leikurinn kl. 19:15
Þetta er stórleikur en liðin eru jöfn að stigum í deildinnig en Haukar unnu Þór síðast er þessi lið mættust í deildinni rétt fyrir áramót.
Við hvetjum allt Haukafólk til að gera sér ferð suður og hvetja strákana áfram í þessum mikilvæga leik en þetta verður fyrsti leikur Brandons Mobley fyrir Haukaliðið.
Stelpurnar kepptu í gær í bikarnum í Grindavík og töpuðu með tveim stigum eftir jafnan og spennandi leik. Stelpurnar áttu ekki góðan dag og hittu mjög illa og því var tap staðreynd.