Alexandra Jóhannsdóttir, leikmaður meistarflokks kvenna, spilaði á dögunum tvo vináttuleiki með U17 landsliði Íslands gegn Skotlandi. Íslensku stúlkurnar unnu báða leikina nokkuð örugglega, annars vegar 3-0 og hins vegar 4-2.
Alexandra er 15 ára og hefur hún spilað 12 leiki fyrir U17 en hún skrifaði á dögunum undir samning við Knattspyrnudeild Hauka.
Næsta verkefni U17 er milliriðill fyrir úrslitakeppni en mótherjar Íslands í riðlinum eru Belgía, England og Serbía.