Kári Jónsson, Haukum, var útnefndur besti leikmaður Domino’s-deildar fyrir síðara hluta deildarkeppninnar sem nú er nýlokið.
Kári var einnig í úrvalsliðinu og náði þvi bæði að vera i 5 manna úrvalsliðið Dominos deildar fyrri og seinni hlutann.
Kári hefur spilað einstaklega vel hjá Haukum á þessu tímabili og á þessi verðlaun fyllilega skilið þó ungur sé.
Við óskum Kára innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.