Stelpurnar tryggðu sér rétt í þessu deildarmeistaratitilinn í Olísdeild kvenna 2016. Þær unnu góðan sigur í Vestmannaeyjum 32-25. Á sama tíma tapaði Grótta fyrir Fram og því ljóst að stelpurnar eru deildarmeistarar.
Þar með erum við deildarmeistarar bæði m.fl. kvenna og karla.
Til hamingju stelpur og til hamingju allir Haukamenn!