Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu keppti við HK / Víking í Lengjubikarnum á Schenkervellinum á laugardaginn.
Það er skemmst frá því að segja að stelpurnar okkar unnu auðveldan 5-0 sigur.
Staðan í hálfleik var 3-0 fyrir Hauka.
Mörk Hauka skoruðu Hildigunnur Ólafsdóttir (6. mín.), Konný Arna Hákonardóttir (18. mín.), Margrét Björg Ástvaldsdóttir (31. og 87. Mín.) og Þórdís Elva Ágústsdóttir (81. Mín).
Það er því ljóst að stelpurnar eru til alls líklegar í sumar og munu áreiðinlega gera harða atlögu að úrvalsdeildarsæti að ári.
Næsti leikur er á móti Víking Ó. Föstudaginn 8. Apríl, klukkan 20 í Akraneshöllinni.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla stuðningsmenn til mæta og styðja við bakið á stelpunum.
Áfram Haukar!