Úrslitin hefjast í kvöld í DHL höllinni, KR – Haukar í kvöld kl. 19:15

haukur óskarsLOKSINS, eftir 23 ára bið er kkd. Hauka loksins komin í úrslitaleikinn um þann stóra. Haukarnir hafa verið að spila gríðarlega vel eftir janúar og hafa sýnt mikinn karakter. Strákarnir urðu fyrir hverju áfallinu á fætur öðru í úrslitakeppninni en hafa bara elfst við hverja raun.

Í 8 liða úrslitum unnu strákarnir sterkt lið Þórs 3-1 og svo náðu þeir að hefna fyrir tapið á síðasta ári með því að leggja Tindastól að velli, einnig 3-1 eftir gríðarlega flottta leiki. Haukarnir náðu að tryggja sig í úrslitin með því að vinna á einum erfiðast útivelli sem til er, Síkinu,  sem sýnir að liðið er tilbúið í átökin.

Andstæðingarnir eru Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára, KR og því ljóst að strákarnir þurfa að spila vel til að leggja reynslumikið lið KR að velli.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta snemma í Vesturbæinn og styðja strákana til sigurs.