Hákon Daði hefur framlengt samning sinn við Hauka um 3 ár
Hákon Daði Styrmisson hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við Hauka. Hákon hefur leikið mjög vel eftir að hann kom til Hauka í janúar og það er því mikið gleðiefni að hann verði áfram hjá félaginu næstu þrjú árin.