Sigur á Sindra

haukar

Markaskorarar Hauka í gær: Hildigunnur, Konný og Sunna

Meistaraflokkur kvenna í fótbolta sigraði í gær lið Sindra 1-5 í Borgunarbikaranum en leikið var á Höfn í Hornafirði.

Konný Arna Hákonardóttir skoraði fyrstu tvö mörk Hauka í fyrri hálfleik og Hildigunnur Ólafsdóttir bætti svo við þriðja marki okkar stúlkna á 57. mínútu. Sindri minnkaði muninn skömmu síðar en
Sunna Líf Þorbjörnsdóttir bætti við fjórða markinu á 89. mínútu. Hildigunnur skoraði svo sitt annað mark og fimmta mark Hauka í uppbótartíma.

Glæsilegur sigur hjá okkar stúlkum og við komnar áfram í Borgunarbikarnum.

Áfram Haukar!