Úrslitaeinvígi Hauka og Aftureldingar um Íslandsmeistaratitil Olísdeildar karla heldur áfram á morgun, miðvikudag. Afturelding sigraði fyrsta leik liðanna og því skiptir sköpum að strákarnir fái öflugan stuðning Haukafólks í öðrum leiknum, sem fer fram í Mosfellsbæ. Nú er skemmtilegasti tími ársins í handboltanum og allir þurfa að leggjast á árarnar til að búa til einstaka umgjörð. Rútur munu leggja af stað frá Ásvöllum kl. 18 á morgun (miðvikudag) og hvetjum við Haukafólk til að fjölmenna og styðja strákana. Ókeypis er í rútuna fram og til baka. ÁFRAM HAUKAR!