Góður félagi fallinn frá

hálf stöngLátinn er okkar ágæti  félagi,  Óskar Halldórsson, 87 ára að aldri, eftir stutt veikindi.
Óskar var einn af minnisstæðustu forystumönnum félagsins frá tímum endurreisnar félagsins á 6. og 7. áratug síðustu aldar.
Hann var formaður félagsins 1961 -1965, formaður Öldungaráðs 1998 -2004. Vann m.a. að stofnun Knattspyrnudeildar 1961.
Heiðursfélagi frá 2006.
Félagið sendi eiginkonu og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur.