Árlegt árgangamót Hauka í körfuknattleik verður haldið þann 1. október næstkomandi. Er þetta fimmta árið í röð sem að mótið er haldið og hefur það farið vaxandi ár frá ári og er búist við metþátttöku í ár. Það er því ekki seinna vænna en að skrá sig en hægt er að gera það hér.
Sem fyrr verður spilað í riðlum áður en haldið er í úrslit og bjóðum við núna árgang 1986 velkominn í hópinn. Að móti loknu verður haldið í veislusal Hauka þar sem borðhald og verðlaunaafhending fer fram.
Sem fyrr er verðinu stillt í hóf en fyrir mót og mat kostar 5500 krónur.
Fylgist því með á FB síðu Árgangamótsins þar sem hægt er að senda fyrirspurnir sem og fylgjast með gangi mála.