Haukar – Valur Dominos deild kvenna sunnudaginn 9. okt. kl. 19:15

haukar kvennaHaukastúlkur munu spila sinn annan leik í Dominos deild kvenna í Schenkerhöllinni á sunnudaginn kl. 19:15.

Stelpurnar spiluðu sinn
fyrsta leik í Grindavík síðastliðinn miðvikudag og töpuðu með 15 stiga mun. Stelpurnar spiluðu mjög vel í fyrsta og fjórða leihluta en áttu í miklum erfiðleikum með sinn sóknarleik í öðrum leikhluta og mistu þá Grindavíkur stúlkur of langt fram úr sér. Stelpurnar spiluðu án leikstjórnanda síns, Þóru, sem er meidd og einnig án erlends leikmanns.

Það má hrósa stelpunum fyrir mikla baráttu og að gefast aldrei upp þó svo útlitið væri orðið svart í þriðja leikhlutanum. Þær geta tekið það með sér í þennan fyrsta heimaleik á móti Val og nú bætist nýji erlendi leikmaðurinn við og því má búast við þeim mun sterkari.

Valsstúlkur lágu líka í sínum fyrsta leik, á móti Njarðvík og því er ljóst að þetta er mikilvægur leikur fyrir heimastúlkur.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn og hvetja hið unga lið Hauka áfram í baráttunni. Hver sigur á eftir að verða gulls ígildi.