Haukar fá Skallagrím í heimsókn í 12 umferð Dominos deildar kvenna í kvöld kl. 19:15 og þurfa nauðsynlega á sigri að halda.
Hið unga lið Hauka situr á botni Dominos deildar en geta með sigri lyft sér upp í fimmta sæti deildarinnar. Liðið hefur verið að bæta sinn leik og spiluðu ágætlega í síðasta leik, á móti Snæfelli á útivelli og þrátt fyrir ósigur í þeim leik voru augljós batamerki frá leiknum á móti Keflavík.
Nýr erlendur leikmaður er að komast betur inní leik liðsins og Þóra hefur verið að komast í betra leikform eftir erfið meiðsli.
Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn í kvöld og hvetja stelpurnar til sigurs.