Á föstudaginn, Þrettándanum, verða jólin kvödd með fjölbreyttri fjölskylduskemmtun hér á Ásvöllum.
Á svæðið mæta álfar, púkar og tröll að ógleymdum jólasveininum sem heldur nú til fjalla.
Tónlist og söngur af sviði og glæsileg flugeldasýning.
Léttar veitingar á vægu verði.
Skemmtunin hefst kl. 18 og lýkur með glæsilegri flugeldasýningu kl 19.
Góða skemmtun!