Haukarnir fá Grindavík í heimsókn í gríðarlega mikilvægum leik, en liðin sitja í tveim neðstu sætum Dominos deildar kvenna með 6 sigra og 11 tapleiki. Haukar geta því komist af botninum og sett smá pressu á Val sem situr í sjötta sæti deildarinnar.
Haukarnir spiluðu gríðarlega vel í síðasta leik á móti Njarðvík og voru nálægt sigri en þær spiluðu án erlends leikmanns, sem ekki er komin með leikheimild. Erlendur leikmaður Njarðvíkinga var Haukastelpunum erfið en hún skoraði um 40 stig og því ljóst að mikið býr í þessu unga Haukaliði.
Við hvetjum allt Haukafólk til að fjölmenna á leikinn og hvetji stelpurnar áfram
Áfram Haukar.