Konný Arna Hákonardóttir og Margrét Björg Ástvalsdóttir hafa skrifað undir samninga við Knattspyrnudeild Hauka.
Konný gekk til liðs við Hauka árið 2012 og var um að ræða endurnýjun á samning.
Margrét Björg hefur gert félagaskipti í Hauka eftir að hafa verið á lánssamningi frá Fylki síðasta keppnistímabil.
Halldór Jón Garðarsson, formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Haukum, fagnar samnningum við þær Konný og Margréti enda miklar væntingar gerðar til þeirra beggja í Pepsí deildinni á næsta tímabili.