Úrslitakeppnin hjá strákunum hefst á sunnudaginn þegar Framarar koma í heimsókn í Schenkerhöllina kl. 17:00. Framarar hafa komið allra liða mest á óvart í vetur og enduðu í 6. sæti þvert á allar spár fyrir tímabilið. Leikir þessara liða hafa verið hörkuleikir í vetur og má búast við skemmtilegri rimmu milli þessara liða.
Við hvetjum alla Haukamenn til að mæta og styðja strákana til sigurs!
Áfram Haukar!