Verður haldið á Hvaleyrarvellinum föstudaginn 1. sept. nk.
Keppt er um Haukaskjöldinn í höggleik án forgjafar.
Keppt er um Rauða Jakkann og titilinn Öldungameistari Hauka í punktakeppni til minningar um Ólaf H. Ólafsson.
Hámarksforgjöf kvenna er 28 og karla 24.
Konur leika af rauðum teigum og karlar af gulum teigum.
Nándarverðlaun verða veitt á par 3 brautum vallarins.
Þátttökugjald er kr. 5000.
Dregið verður úr skorkortum þeirra sem ekki hljóta verðlaun í mótinu.
Aldurstakmark er 18 ár. Skráning er á golf.is
Verðlaunaafhending verður kl. 20 í Golfskálanum.
Haukafélagar sem ekki taka þátt í mótinu eru hvattir til að mæta við verðlaunaafhendinguna, njóta góðra veitinga auk hins fallega útsýnis er Golfskáli Keilis býður upp á.