30 manna hópur glaðbeittra Haukafélaga hélt í gær í óvissuferð um höfuðborgarsvæðið.
Þema ferðarinnar var að sjá Ísland með augum erlends ferðamanns undir leiðsögn.
Ferðin þótti takast mjög vel og það voru ánægðir ferðalangar sem kvöddust hér á Ásvöllum í gærkvöldi að ferð lokinni.