Látinn er eftir erfið veikindi okkar góði félagi Árni Yngvi Hermannsson, 58 ára að aldri. Árni var virkur félagi í Haukum frá unga aldri, sonur Hermanns Þórðarsonar sem var forystumaður og formaður félagsins um margra ára skeið. Árni var afreksmaður bæði í knattspyrnu og handknattleik. Hans vettvangur var þó aðallega í handboltanum þar sem hann lék og starfaði um áratuga skeið. Síðustu árin hafði hann á hendi öll erlend samskipti handknattleiksdeildar.
Félagið þakkar góð störf í þess þágu og sendir fjölskyldu Árna innilegar samúðarkveðjur.