Það er komið að hápunkti tímabilsins í handboltanum sjálfri úrslitakeppninni en í kvöld hefja stelpurnar í meistaraflokki leik þegar að þær halda í Valshöllina og etja kappi við deildarmeistara Vals kl. 19.30. Haukastelpur mæta dýrvitlaustar til leiks ólmar í það að hefna fyrir tapið í síðasta leik þegar að liðin áttust við í hreinum úrslitaleik um deildarmeistaratitilinn en þar hafði Valur betur.
Það má því búast við hörkuleik þegar að liðin mætast í kvöld í Valshöllinni kl. 19:30. Til þess að hita upp fyrir leikinn er um að gera fyrir fólk að kíkja á umfjöllun um einvígið hjá þessum liðum sem Seinni Bylgjan var með á mánudag. Áfram Haukar!