Aðalfundur félagsins var haldinn 27. mars sl. Fram kom í ársyfirliti að hagur félagsins er með ágætum, gróskumikið íþróttastarf og fjárhagur góður. Eitt helsta áherslumál félagsins nú er bygging knatthúss sem mun bæta aðstöðu knattspyrnufólks okkar.
Stjórn félagsins skipa nú: Formaður Samúel Guðmundsson, varaformaður Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri Guðborg Halldórsdóttir, meðstjórnendur Þorgeir Haraldsson, Elva Guðmundsdóttir, Ágúst Sindri Karlsson, Jón Björn Skúlason, Jónas Jónmundsson, Gísli Guðlaugsson, Bjarni H Geirsson, Kristján Ó Davíðsson og Rannveig Hafberg.
Framkvæmdastjóri félagsins er Magnús Gunnarsson