Markmaðurinn Ástríður Glódís Gísladóttir hefur ákveðið að leika með Haukum í Olísdeild kvenna á næsta tímabili. Ástríður Glódís kemur til Hauka á lánssamningi frá Fylki en hún hefur leikið fyrir öll yngri landslið Íslands og er núna í U20 ára landsliðinu. Haukar bjóða Ástríði velkomna í Haukafjölskylduna og hlakka til að sjá hana á gólfinu eftir sumarið.