Hilmar Smári kominn aftur heim

Hilmar Smári Henningsson er búinn að skrifa undir 2ja ára samning við uppeldisfélagið og er það mikið gleðiefni að hann hafi ákveðið að koma aftur heim eftir að hafa farið til Þór Akureyri um jólin á síðasta tímabili í Dominos deildinni.

Hilmar Smári er einn efnilegasti leikmaður landsins og er lykilmaður í U18 ára landsliði Íslands sem verður í eldlínunni í sumar á Norðurlandamótinu og í Evrópukeppninni.

Við bjóðum Hilmar Smára velkominn aftur heim og hlökkum til að sjá hann aftur í sínum uppeldisbúning.