Golfmóti Hauka 2018 lauk með verðlaunaafhendingu í Golfskálanum sl. föstudagskvöld.
Mótið þótti takast vel í fallegu haustveðri á mjög góðum Hvaleyrarvelli.
Í fyrsta skipti í 29 ára sögu mótsins hreppti kona öll helstu verðlaun mótsins – Þórdís Geirsdóttir.
Hún hlaut Rauða jakkann fyrir flesta punkta, Haukabikarinn fyrir besta skor án forgjafar og Gula boltann, í minningu Ólafs H Ólafssonar, fyrir besta skor í höggleik án forgjafar.
Mót- og veislustjóri var Guðmundur Friðrik Sigurðsson sem stýrði af festu.