Efnilegt knattspyrnufólk valið á úrtaksæfingar í yngri landsliðum

Hallur Húni Þorsteinsson og Kristófer Jónsson  hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U16 liðs karla. Æfingarnar fara fram 26 – 28. október undir stjórn Davíðs Snorra Jónassonar, þjálfara U16 landsliðs Íslands.

Þá tóku þær Berglind Þrastardóttir og Mikaela Nótt Pétursdóttir þátt í úrtaksæfingum fyrir Suðvesturland vegna U15 ára landsliðs stúlkna. Æfingarnar fóru fram 12. og 13. október sl. undir stjórn Þorláks Árnasonar þjálfara U15. Stelpurnar stóðu sig með prýði.

Knattspyrnudeild Hauka óskar þessum efnilegu iðkendum innilega til hamingju með valið.