Það er komið að úrslitastundu í deildarkeppninni hjá stelpunum í Olís deild kvenna þegar að síðasta umferðin fer fram í Schenkerhöllinni kl. 19.30. Mótherjinn í kvöld er ÍBV og má búast við hörkuleik því liðin eru í harðri baráttu um 3. sætið í deildinni en fyrir umferðina er ÍBV í 3. sætinu með 25 stig og Haukastelpurnar í því 4. með 23 stig. Með sigri í kvöld tryggja Haukastelpur sér hinsvegar 3. sætið á innbyrgðist viðureignum og því til mikils að vinna fyrir bæði lið í kvöld. Það er því skyldumæting fyrir Haukafólk í kvöld til í rauðu að styðja stelpurnar í baráttunni. Áfram Haukar!