Lokahóf KKÍ fór fram á dögunum þar sem leikmenn Domino’s deildanna sem sköruðu fram úr í vetur voru heiðraðir.
Þóra Kristín Jónsdóttir var valin í úrvalsliðið sem og prúðasti leikmaður deildarinnar.
Hilmar Smári Henningsson var valinn besti ungi leikmaður deildarinnar. Verður hann handhafi Örlygsbikarsins en bikarinn er til minningar um Örlyg Sturluson.
Til hamingju Þóra og Hilmar.