Egill Egilsson, einn af traustustu og elstu félögum okkar er látinn, 93 ára að aldri. Hann var í hópi fræknustu íþróttamanna félagsins á árum áður í knattspyrnu og handknattleik. Hann var varaformaður félagsins um árabil og sat í ýmsum nefndum og ráðum á þess vegum. Egill var útnefndur heiðursfélagi árið 1972.
Félagið sendir fjölskyldu Egils innilegar samúðarkveðjur.