Á morgun miðvikudaginn 7.ágúst heldur mfl. kvenna í viku æfingarferð til Essen í Þýskaland. Þar munu þær vera við stífar æfingar fyrir komandi vetur ásamt því að taka þátt á 4 liða móti. Hægt verður að fylgjast með ferðinni á Instragramsíðu Hauka ásamt því að settar verða inn fréttir af leikjunum á Twitter og á Facebook.
Við óskum þeim góðrar ferðar og góðs gengis í leikjunum