Nú fer hver að verða síðastur til að sækja um fyrir Afreksskóla Hauka og Afrekssviðið fyrir komandi skólavetur. Síðari umsóknarfrestur rennur út 16. ágúst. Allar upplýsingar er að finna inni á umsóknareyðublaðinu. Afrekslína Hauka samanstendur annars vegar af Afreksskólanum fyrir 2004-2006 módel og svo Afrekssviðið fyrir 2000-2003 módel.
Fyrsta kennslustund Afreksskólans verður föstudaginn 30. ágúst. Fyrsta kennslustund knattspyrnuiðkenda á Afrekssviðinu er miðvikudaginn 4. september. Fyrsta kennslustund handboltaiðkenda á Afrekssviðinu er mánudaginn 26. ágúst.
Ítarlegar upplýsingar ásamt umsóknareyðublaði má finna með því að SMELLA HÉR