Það er komið að síðasta heimaleik ársins 2019 í handboltanum. Þá mæta Norðanmenn í KA á Ásvelli í Olísdeild karla. Haukar hafa leikið mjög vel í deildinni á árinu 2019 og vilja enda árið á heimavelli með stæl. Það er því um að gera fyrir allt Haukafólk að fjölmenna á Ásvelli á laugardag kl. 17:30 til að styðja strákana til sigurs. Áfram Haukar!