Þeir Andri Steinn Ingvarsson, Birkir Brynjarsson, Magnús Ingi Halldórsson, Pálmar Stefánsson og Þorsteinn Ómar Ágústsson hafa verið valdir til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ á Höfuðborgarsvæðinu.
Þeir eru allir á eldra ári í 4. flokki en þjálfari er Freyr Sverrisson og aðstoðar þjálfari er Viktor Ingi Sigurjónsson.
Æfingarnar fara fram í Egilshöll sunnudaginn 19.janúar 2020 undir stjórn Lúðvíks Gunnarssonar, þjálfara.
Til hamingju drengir og gangi ykkur vel!