1.febrúar 1990 komu nokkrir ungir piltar saman í Haukahúsinu við Flatahraun og stofnuðu Karatedeild Hauka. Hefur deildin vaxið og dafnað síðan og unnið til margra viðurkenninga.
Karatedeildin hyggst fagna þessum tímamótum í hófi 29. febrúar. Núverandi formaður er Kristján Ó. Davíðsson.