Aðalfundur knattspyrnudeildar Hauka var haldinn sl. þriðjudag á Ásvöllum.
Á fundinum fór Halldór Jón Garðarsson, formaður deildarinnar, yfir síðasta keppnistímabil og helstu markmið stjórnar fyrir árið 2020 en öll stjórnin bauð sig fram til endurkjörs. Þá fór Karl Guðmundsson, gjaldkeri deildarinnar, yfir rekstur meistaraflokka síðasta árs.
Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fyrir árið 2020 er skipuð eftirtöldum aðilum:
Halldór Jón Garðarsson, formaður
Jón Björn Skúlason, varaformaður
Karl Guðmundsson, gjaldkeri
Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs karla
Oddný Sófusdóttir, formaður meistaraflokksráð kvenna
Brynjar Viggósson, formaður BUR kk
Þórdís Rúriksdóttir, formaður BUR kvk
Helga Helgadóttir, ritari stjórnar
Elías Atlason, meðstjórnandi, sem kemur nýr í stjórn
Ellert Ingi Hafsteinsson, meðstjórnandi
Gísli Aðalsteinson, meðstjórnandi, sem kemur nýr í stjórn
Guðmundur Ólafsson, meðstjórnandi
Guðmundur St. Sigurðsson, meðstjórnandi, sem kemur nýr í stjórn
Jóhann Unnar Sigurðsson, meðstjórnandi