Harpa Karen hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka.
Harpa er 22 ára gömul, fædd 1999, og á að baki 32 leik í deild og bikar í meistaraflokk. Harpa hefur spilað með okkur í Haukum frá 2018. Hún er gríðarlega efnileg á miðjunni og hefur verið sterkur hlekkur í Haukaliðinu síðustu ár.
Það er því ánægjuefni fyrir knattspyrnudeild Hauka að Harpa hafi skrifað undir samning við félagið.
Ljósmynd: Hulda Margrét